24.5.2011 | 11:51
Hvalir
- Hvalir eru spendýr.
- Þeir lifa í öllum heimshöfum.
- Þeir anda að sér lofti um blástursop sem er á höfðinu.
- Hvalir skiptast í tvo undirættbálka,tannhvali og skíðishvali.
- Hvalir hafa lélega sjón en mjög góða heyrn.
- Karldýrið heitir tarfur, kvendýrið kýr, og afkvæmið kálfur
- Þegar hvalkýrin fæðir þá keflir hún kálfinum.
- Skíðishvalir hafa ekki tennur heldur eru þeir með hornblöð sem kölluð skíði.
- Þeir eru með tvö blástursop.
- Steypireyður er skíðishvalur og er stærsta dýr jarðar fyrr og síðar.
- Tannhvalir eru með tennur til að grípa sleipa bráðina.
- Þeir éta mjög mikið og kafa á mikið dýpi til að finna fæðuna.
- Búrhvalurinn er stærstur allra tannhvala.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.5.2011 | 13:17
Eyjafjallajökull
Í náttúrufræði átti ég að velja mér eldfjall til að skrifa um. Ég valdi mér Eyjafjallajökul. Ég fékk hefti um Eyjafjallajökul og skrifaði upplýsingarnar niður á blað, svo fór ég í tölvuna, fann fleiri upplýsingar og skrifaði niður í word. Ég fór svo á google og fann myndir og vistaði glærurnar á sildeshare.net.Mér fannst þetta verkefni skemmtilegt og mér gekk vel að vinna það.
Bloggar | Breytt 24.5.2011 kl. 11:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.2.2011 | 10:52
Heimildaritgerð
Síðustu vikur er ég búin að vinna við að gera heimildaritgerð um lífið á Íslandi á 13.öld. Ég las bækurnar Gásagátan og Snorri Sturluson lífið á miðöldum. Þegar ég var búin að lesa þær fengum við miða og 13 spurningar úr bókunum. Eftir að ég var búin að svara öllum spurningunum fór ég í tölvuna og skrifaði í Word .Að lokum þegar ég var búin að skrifa allt inn í Word,fór ég inná google .is og fann myndir. Að því loknu fór ég inná box.net, stofnaði aðgang og setti ritgerðina inná.
Núna veit ég miklu meira um lífið á 13.öld.
Hér geturu séð ritgerðina mína.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2011 | 11:51
Það mælti mín móðir
Síðustu vikurnar höfum við verið að vinna með ljóðið Það mælti mín móðir eftir Egil Skallagrímsson. Við vorum líka að gera þetta til að læra upplýsinga og tæknimennt og þetta verkefni var bæði í íslensku og samfélagsfræði. Við byrjuðum á því að fara inná google og finna myndir sem pössuðu við ljóðið. Þegar við vorum búin að því,fórum við inná photostory og settum myndirnar þar inn. Þegar við vorum búin að setja myndirnar þá lásum við ljóðið inná.
Mér gekk vel að vinna þetta verkefni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.11.2010 | 11:03
Ferð til Borgarfjarðar
Mér fannst rosalega gaman og ég lærði mikið um sögu Egils.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.10.2010 | 08:59
Samfélagsfræði
Á haustönninni var ég að læra um Norðurlöndin. Ég fékk bók sem heitir Norðurlöndin og þar er sagt frá þeim öllum. Þegar ég var búin að læra um þau öll og taka próf úr þeim, þá átti ég að búa til glærukynningu.Norðurlöndin eru Svíþjóð, Danmörk, Finnland, Ísland, Grænland, Álandseyjar og Færeyjar. Ég valdi að gera kynningu um Danmörku. Nú kann ég miklu meira um norðurlöndin. Ég veit að Grænland er stærsta eyja jarðar, Færeyjar eru átján eyjar, Strikið í Kaupmanahöfn er lengsta verslunargata í heimi og margt fleira.Til að gera glærurnar fór ég inn á powerpoint og notaði norðurlandabókina og svo fór ég á google og fann myndir.
Bloggar | Breytt 27.10.2010 kl. 08:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)